Heimasíða Kvaran-ættar.
Ættarmót á Þingvöllum 28. júlí til 30. júlí 1995
Hundrað ára ártíð ættföðursins Gunnars E. Kvaran

Það vantar að setja inn almenna umfjöllun um undirbúning mótsins ásamt því að það þarf að fá ættingja til þess að senda inn myndir sem hægt er að skreyta síðuna með.

Opnunarræða
Flutt af Gunnari Gísla Kvaran

Kæru ættingjar!

Eflaust er ykkur það flestum í fersku minni, ættarmótið sem við héldum 1990.  Veðurguðirnir léku við ættmeiðina og maka þeirra.  Gömul kynni endurnýjuðust, ættingjar féllust í faðma og allt þótti heppnast yfirmáta vel.  Ættingjamót þetta þótti skemmtilegasta ættingjamót sem haldið hefur verið. 

Síðan á síðasta ættingjamóti hefur mikið vatn til sjávar runnið og nú er aftur komið að því að ættingjar hittist á ný og reyni með sér í hinum ýmsu þrautum og skemmti sér saman.

Um helgina verða hin ýmsu skemmtilegustu atriði á dagskránni ættingjum til dægrastyttingar:  Til dæmis verða ratleikur, pílukastkeppni með útsláttarfyrirkomulagi, stangveiðimót, Sandeyjarferðir, sílaveiðar og sandkastalabyggingar.  Ættingjar geta reynt með sér í reiptogi og í langstökki.  Hástökksrá er á staðnum og þeir sem ekki treysta sér í hástökkið geta leikið Limbó.  Fleytt verður kerlingum og hnerraleikur verður haldinn fyrir yngstu kynslóðina.

Einnig verður ættingjum boðið að etja kappi í listflugi flugdreka og mun hápunktur flugsýningarinnar verða öfug bakfallslykkja með snúningi feðganna Ragnars sr. og Ragnars jr.

Með reglulegu millibili verða kaffiboð í hinum ýmsu sumarhúsum og verður ættingjum þar boðið uppá veitingar.

Undir kvöld verður samkoman flutt í samkomutjaldið og mun gleðin halda þar áfram.  Grillað verður, söngvar sungnir, allskonar skemmtiatriði verða á boðstólum og allt gert til þess að kvöldið heppnist sem best.

Það er mér sönn ánægja að lýsa þetta ættingjamót sett og er það von mín að það verði sem eftirminnilegast.

Húrra, húrra, húrra.

RATLEIKUR 1995

-SEM TEYGÐI ANGA SÍNA FRÁ BÚSTAÐI STÍNU OG GUNNARS – AÐ SVARTHÖFÐA – SPÓAHÓLI – OG ALLT AÐ “SNEKKJUHÖFNINNI”

Fundist hafa vísubotnar sem samdir voru í ratleiknum 1995.  Eins og sjá má eru í fjölskyldunni mikil stórskáld – enda erum við komin af slíkum.

Fyrriparturinn sem botna átti hljóðaði á þessa leið:

Á ættarmóti Kvarana
undir gráum himni,

og botnarnir frábæru:

1. stóra má sjá skarana
lausa við alla feimni.

2. sífellt leitum svaranna
án sýnilegrar fimni.

Það vafðist heldur ekki fyrir mönnum og konum að þekkja nöfn kennileita við sumarbústaðina. 

-Eyjarnar á Þingvallavatni heita: Sandey, Nesjaey og Heiðarbæjarhólmi. 
-Bóndabærinn í næsta nágrenni bústaðanna heitir: Heiðarbær. 
-Og hundurinn hans Ingimundar hét: Nú.

Drápan hans Agga frá 1995

Mér hefur, sem elliglóp afkomenda föður míns, verið falið að flytja hér drápu í minni hans.  Drápur hafa bara þann galla að vera gjarnan ortar undir bragarháttum, sem engir skilja nema kóngar og kannski norrænufræðingar.  En þó við séum að sjálfsögðu af kóngum komin, hef ég samt kosið að nota “stafhendu”, sem er auðmeltari.


STAFHENT
Ofar fer nú fjöllum hér,
að ferleg drápa er ætluð mér,
af efni kringum áa minn,
eða máske afa þinn.

Lengri sumum sýnist þó,
sá er hér í húmi bjó,
hans er öldin heil í haust,
en hér er minning hans þó traust.

Gunnar hét sá gæfi karl,
er gekk um Árnes eins og jarl,
en berserkir hans brutu veg
úr björgum þyngri, en þú og ég.

Spúsa hans af snjallri gerð,
sú er hérna umtalsverð,
því amma-lang og amma þín,
einnig var hún móðir mín.

 

Höndin Guðs var hennar nafn,
henni tæpast annar jafn,
við einkar einbeitt hugarþel,
allt lék henni í höndum vel.

Átti sínar stundir við
slaghörpunnar stóra svið,
en ýmsar tungur tók sem leik
og talaði þær alls ósmeyk.

Eitt var það, sem ekki hátt
umtal fékk úr hennar átt,
en hraðritunar brautir braut,
svo bráðaræða penna laut.

Þökk sé báðum þessum nú,
að þið hér eruð, ég og þú,
en stafhendu nú stoppa vil
og stofni okkar drekka til.


Höfundur: Ragnar Kvaran sr.


Til baka á fyrstu síðu

E-mail: kvaran@kvaran.is